Við Höfða er gróðrarstía ófrískra leikkvenna.
Aldrei hef jeg upplifað mig sem jafnmikinn menningarvita og þegar jeg hjólaði á herramannsreiðhjólinu mínu á pósthús miðbæjar og náði í Skírni.
Menn hafa gjarnan gaman af því öfundast út í Frakka sökum aggressívra mótmæla sem þar eiga sjer stundum stað. Frakkar eru núna fyrst að mótmæla háu bensínverði. Virðast mótmælin ætla að bera nokkurn árangur en Sarkozy er að meta að lækka skatta á eldsneyti.
Nú myndi hagfræðingurinn greina þetta með frekar einföldum hætti. Staðreyndir málsins virðast vera þessar:
1) Frakkar mótmæla af hörku
2) Íslendingar mótmæla ekki af hörku
3) Franskir ráðamenn láta að hótunum
4) Íslenzkir ráðamenn láta mótmæli sem vind um eyru þjóta
Af þeim má draga nokkrar ályktanir. Tiltölulega staðföst mótmæli þar sem hótað er verulegum skemmdum hafa áhrif á veiklundaða ráðamenn. Veik mótmæli þar sem hótað er takmörkuðum skemmdum hafa lítil áhrif óháð staðfestu ráðamanna.
Ráðið til íslenzkra vörubílstjóra ætti þá að vera það að þeir ættu að mótmæla af mun meira þunga og valda mun meiri spellum. Þá fáum við a.m.k. að vita hvort íslenzkir ráðamenn sjeu fullir hörku.
Til er sú lausn önnur sem er margreynd og hefur gefið góða raun. Menn stofna hagsmunasamtök um verðugt verkefni. Hagsmunasamtökin hjúfra sig upp að stjórnvöldum og gæta þess að fá að segja álit sitt á lagafrumvörpum og sitja í nefndum. Í hinum faglega, nútímalega og lýðræðislega heimi sem við búum í er það líklega áhrifaríkasta (og ódýrasta) leiðin við að koma sérhagsmunum á framfæri.
Jeg er enn að jafna mig af því að franska evróvisjónlagið hafi verið súngið á ensku. Hvað varð um heimskulegt stolt kjarnorkuríkisins?
- Halló
- Sælinú, Albert heiti jeg. Er Sebastian við?
- Sæll Albert, þetta er Sebestian.
- Sæll Sebastian, ertu upptekinn?
- Nei Albert. Það er jeg ekki.
- Indælt. Hvað segirðu um það að við förum í gufubað? Sebastian
- Það hljómar vel Albert.
...
Þá er
Degen kominn og líklegt að
Dossena bætist einnig við. Það skyldi nú aldrei fara svo að bakvarðamálin verði afgreidd fyrir júní. Þá í þeirri merkingu að Benitez sje búinn að finna bakverði sem hann telur bæta einhverju við liðið. En nú vill maður líka eina stjörnu, þessir tveir bakverðir ætla nú ekki að verða mjög dýrir (að meðaltali).
Stundum sjer maður hinn og þennan blaðamanninn nefndan „stjörnublaðamann“. Í hvaða blaði er þessa umfjöllun um himintúnglin að finna?
Það hlýtur að vera einhver ástæða fyrir því að Jakob Frímann skyggir á dauða tugþúsunda í Kína í íslenskum frjettatímum. Já, og hinni nýfundnu tízku íslenskra vefmiðla að segja frá hverju kynferðisafbrotamáli sem á sjer stað og er til marks um verulega afbrigðilega háttsemi.
Í seinni frjettum sjónvarpsins í gær var sagt frá því að æðsti dómstóll Kaliforniuríkis hefði komist að þeirri niðurstöðu að samkynhneigðir mættu giptast. Sem er æðisleg efnisniðurstaða. Aftur á móti sagði ekkert um hvað það væri sem gerði stjórnarskrá Kaliforníuríkis þannig að hún leiddi til þessarar niðurstöðu. En það er það sem hefur úrslitaáhrif á það hvort niðurstaðan muni hafa áhrif á fleiri fylki.
Á sama tíma hafa fáir áhyggjur af því að GÞÞ
leggur til að einhleypar konur fá að fara í tæknifrjóvgun. Enda fínt mál.
„Auðvitað er land eins og Ísland ekki hagstæðasta myntsvæði. Það kostar nokkuð að halda gjaldmiðlinum í jafnvægi. Gengið er mjög sveiflukennt, sem leiðir til mikilla sveiflna í neyslu í gegnum verðlagið. Gjaldmiðillinn er frekar uppspretta óstöðugleika en að hann geti dregið úr áhrifum utanaðkomandi áhrifaþátta.”- Arnór Sighvatsson
Jeg á nú hálfbágt með að trúa því að rjett sje haft eftir aðalhagfræðing Seðlabanka Íslands. Hann verður ekki skilinn öðruvísi en svo að hann vísi til kenningar Mundels um hagkvæma stærð myntsvæða. Það er ekkert auðvitað við það að Ísland sje ekki hagkvæmt myntsvæði.
Ísland er sannarlega lítið. Samt þrisvar sinnum stærra en Danmörk. En kenningin hefur ekkert með fýsíska stærð að gera. Í sinni einföldustu mynd er hugmyndin sú að einhvers staðar rekist ábatinn af lægri viðskiptakostnaði stærra myntsvæðis og aukinn kostnaður af sameiginlegri peningamálastefnu.
Hinn lækkaði viðskiptakostnaður sem fylgir stærri mynt á vitaskuld við, a.m.k. fyrir marga (evran er samt ekki helmingur utanríkisviðskipta). Á móti kemur aftur á móti getur kostnaðurinn af því að vera ekki nægilega svipuð öðru mynstvæði verið töluverður líkt og Spánverjar og Ítalir hafa fengið að kynnast.
En hjer er einmitt önnur ástæða fyrir því að ekki má fullyrða um stærðina. Sje ekki þekkt hvernig myntsvæði á að stækka er kostnaðarfallið algerlega óþekkt (það verður í sjálfu sjer aldrei þekkt). Stæði til að taka upp myntsamstarf með Suður-Afríku eða Zimbabwe liggur fyrir að ávinningurinn myndi seint svara kostnaði.
Jæja. Það var nú óþarfi að skrifa allan þennan teksta til að sanna að annað hvort þyki Arnóri evran fínn kostur eða rangt var eftir honum haft.
Það má finna margan löstinn á nútímanum. Eitt er það þó sem telja verður honum til tekna. Það er góssentíð fyrir kverúlanta.
Hversu kómískt er það ekki að eftir að hafa hrópað úlfur úlfur í mörg virðist Dagur Bergþóruson hafa fundið vott af spillingu í samflokksmanni sínum Jakobi Frímann?
Hversu kómískt er það að eftir að hafa verið þráfaldlega hafnað í prófkjörum samfylkingarinnar hlýtur Jakob Fríman lox dúsur úr hendi Ólafs Eff og sjálfgræðisflokksins?
Mjer er fullkunnugt um það að Jakob
lagði lag sitt við aðra í síðustu kosningum.
Sæll og glaður úngur löffræðingur gjekk út úr viðskiptaráðuneytinu í morgun með kansellísbrjev upp á það að hann væri hagfræðingur.